Mikel Arteta, stjóri Arsenal, viðurkennir að það verði erfitt fyrir liðið að komast í topp fjóra á tímabilinu.
Arsenal tapaði 2-1 gegn Olympiakos í gær og er úr leik í Evrópudeildinni. Liðið er einnig nokkuð langt frá fjórða sætinu.
,,Það verður mjög erfitt því ef við horfum á töfluna þá erum við langt frá eigin markmiðum en við höfum vitað það að við þurfum að berjast allt tímabilið,“ sagði Arteta.
,,Það mikilvægasta er að búningsklefinn sé sterkur og að við höldum áfram og bregðumst við þessu.“
,,Ég þarf að reyna að sannfæra þá um hvað gerðist í þessum leik og af hverju þeir komust ekki áfram.“