Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Malmö, meiddist í kvöld í leik gegn Wolfsburg.
Arnór var í byrjunarliði Malmö í 2-1 tapi gegn Wolfsburg í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Okkar maður meiddist hins vegar í leiknum í kvöld og entist aðeins 22 mínútur.
Það gæti reynst áfall fyrir íslenska landsliðið en við eigum leik við Rúmena í umspili í næsta mánuði.
Arnór og félagar eru þó í ágætri stöðu fyrir seinni leikinn heima í næstu umferð.