Stórleik umferðarinnar á Englandi er nú lokið en Chelsea fékk þá Manchester United í heimsókn.
Það var nóg undir á Stamford Bridge en United gat minnkað forskot Chelsea í fjórða sætinu niður í þrjú stig.
Fjörið var mikið í London í kvöld en það var United sem hafði betur að lokum með tveimur mörkum gegn engu.
Anthony Martial og Harry Maguire gerðu mörk United í sigrinum en þau komu bæði með skalla.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1988 sem United tekst að vinna Chelsea tvisvar á sömu leiktíðinni í deild.
United vann Chelsea 4-0 á Old Trafford í fyrstu umferð og svo 2-0 í kvöld.
2 – Manchester United have completed their first league double over Chelsea since the 1987-88 campaign, while this is the first time they’ve done so without conceding since 1964-65. Awaited. #CHEMUN pic.twitter.com/vOwzPgVbi2
— OptaJoe (@OptaJoe) 17 February 2020