Eins og flestir vita þá er búið að dæma Manchester City í tveggja ára bann frá Meistaradeildinni.
UEFA hefur rannsakað City undanfarin tvö ár og komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði brotið fjárlög sambandsins.
City þarf einnig að borga 25 milljónir punda í sekt og gæti lent í enn fleiri vandræðum ef marka má fréttir kvöldsins.
Haft er eftir lögmanninum John Mehrzad sem segir að City sé búið að brjóta traust eigin leikmanna.
Í kjölfarið gætu stjörnur City fengið leyfi til að yfirgefa félagið á frjálsri sölu eða þá að heimta enn betri samning en þeir eru á.
Það sama má segja um Pep Guardiola og hans aðstoðarmenn sem gætu yfirgefið félagið fyrir ekkert.
4. City players could contend that their player contracts have been fundamentally undermined – and resign in response, effectively becoming ‘free agents’.
— John Mehrzad (@JohnMehrzadLaw) 15 February 2020