Brasilíska goðsögnin Pele harðneitar því að hann sé of þunglyndur til að yfirgefa eigið heimili eins og talað er um.
Pele verður 80 ára gamall í desember en sonur hans Edinho tjáði sig um erfiðleika föður síns á dögunum.
Þar sagði Edinho að faðir sinn væri þunglyndur heima alla daga en það er víst ekki rétt.
,,Takk fyrir bænirnar og kveðjurnar. Það er í lagi með mig. Ég verð 80 ára gamall á þessu ári,“ sagði Pele.
,,Ég á góða og slæma daga. Það er eðlilegt fyrir fólk á mínum aldri. Ég er ekki hræddur, ég er ákveðinn og hef fulla trú á því sem ég geri.“
,,Í síðustu viku fékk ég þann heiður að hitta forseta brasilíska sambandsins þar sem var verið að taka upp heimildarmyndina mína.“
,,Ég er með nokkra hluti á dagatalinu. Ég er ekki að forðast það sem ég lofa mér í. Ég mun halda boltanum rúllandi. Guð blessi ykkur öll.“