Ensk blöð segja í morgun að Manchester United vilji kaupa bæði James Maddison og Jack Grealish í sumar, báðir hafa spilað vel í vetur.
Líklegra er að United geti fengið Grealish enda er Maddison að ræða nýjan samning við Leicester.
Grealish kostar rúmar 40 milljónir punda í sumar en hann er með klásúlu í samningi sínum um að geta farið, frá Aston Villa. Þar að auki gæti Villa fallið og þá er ljóst að Grealish fer.
Báðir hafa spilað vel í vetur en tölfræði Grealish er þó ögn betri en tölfræði Maddison.
Samanburður á þeim er hér að neðan.