Neymar, leikmaður Paris Saint-Germain, kom mörgum á óvart á Instagram síðu sinni í dag.
Neymar vakti athygli í síðustu tveimur leikjum PSG þegar hann mætti til leiks með bleikt hár.
Hann fékk töluvert skítkast fyrir það og ákvað í kjölfarið að gera það sama og Jose Mourinho, stjóri Tottenham.
Mourinho lét raka allt hárið af nú á dögunum og hefur Neymar gert nákvæmlega það sama.
Þetta má sjá hér.