Romelu Lukaku hefur heldur betur slegið í gegn hjá Inter eftir að félagið festi kaup á honum frá Manchester United síðasta sumar.
United var búið að gefast upp á Lukaku og Lukaku var búinn að gefast upp á United, samstarf þessara aðila gekk ekki upp. United sakaði Lukaku um leti og að vera ekki í formi.
Eitthvað var til í því, Lukaku var yfir 100 kíló þegar hann mætti til æfinga síðasta sumar, hann fór að léttast þegar líða tók á sumarið.
Þegar Lukaku kom til Inter skipaði Antonio Conte, þjálfari Inter honum að léttast og það hefur virkað. Lukaku er tæplega sex kílóum léttari í dag en þegar hann mætti til Ítalíu.
Hann er ekki lengur þungur á sér, hann er sneggri og það skilar sér. Lukaku hefur skorað 20 mörk í 29 leikjum fyrir Inter, enginn leikmaður hefur verið jafn fljótur í 20 mörk í sögu félagsins.
Inter situr á toppnum í Seriu A með vel skafinn Lukaku í sínu besta formi.