Quique Setien, stjóri Barcelona, hefur staðfest það að nokkrir framherjar séu á óskalista félagsins.
Barcelona vill fá framherja til að keppa við Luis Suarez en hann er kominn á seinni árin og er meiddur þessa stundina.
Setien veit af nokkrum leikmönnum sem eru á lista en vildi ekki nefna nein nöfn.
,,Það er augljóst að við þurfum annan framherja og það eru nokkur nöfn á lista en það veltur á mörgu,“ sagði Setien.
,,Fyrst og fremst þá þurfum við að fá leyfi til að ræða við leikmennina.“