Manchester United fékk góðar fréttir í gær en miðjumaðurinn Scott McTominay ferðaðist með liðinu til Marbella.
United er nú í æfingaferð á Spáni en lið í ensku úrvalsdeildinni eru í vetrarfríi þessa stundina.
Þessi 23 ára gamli leikmaður spilaði síðast gegn Newcastle í desember en hann hefur verið meiddur á hné.
McTomunay er mikilvægur hlekkur í liði United og nú styttist í að hann geti farið að spila á ný.
Næsti leikmaður United er gegn Chelsea sunnudaginn 17. febrúar næstkomandi.