Juventus tapaði mjög óvænt í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Verona.
Verona gerði gott jafntefli við Lazio í síðasta leik og fékk svo ríkjandi meistarana í heimsókn í kvöld.
Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir í leiknum en hann skoraði á 65. mínútu fyrir gestina.
Fabio Borini og Giampaolo Pazzini skoruðu svo tvö mörk fyrir Verona sem vann frábæran 2-1 heimasigur.
Verona situr í sjötta sæti deildarinnar með 34 stig, fimm stigum frá Roma sem er í því fimmta.