Jose Mourinho, stjóri Tottenham, ákvað að velja Victor Wanyama ekki í Meistaradeildarhóp liðsins.
Tottenham fékk að velja 30 leikmenn til að nota í útsláttarkeppninni og fær Wanyama ekki að spila. Hann spilaði síðast 11. desember.
Það er þó útlit fyrir að miðjumaðurinn sé ekki hluti af framtíðarplönum Mourinho.
,,Hann hefur verið veikur í þrjá daga. Ég hef ekki séð hann og gat ekki sagt honum frá þessu,“ sagði Mourinho.
,,Þegar hann snýr aftur þá reyni ég að útskýra þetta fyrir honum.“