Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með Burnley sem fékk Arsenal í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni um helgina Leikurinn var engin frábær skemmtun en bæði lið fengu þó tækifæri til að koma boltanum í netið.
Inn vildi knötturinn þó ekki og var markalaust jafntefli niðurstaðan að þessu sinni. Arsenal er með 31 stig í 10. sæti deildarinnar og Burnley er með jafn mörg stig sæti neðar.
Mikel Arteta byrjar ekki vel í starfi hjá Arsenal en liðið hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu sjö hans í starfi.
Eftir leik fór Arteta að kvarta undan því að grasið á Turf Moor, hafi verið illa slegið. Burnley hafi ákveðið að sleppa því að slá grasið, til að hægja á spili Arsenal
Þessu neitar Burnley en félagið gerir grín að ummælum Arteta, með því að breyta um mynd á Twitter. Þar er mynd af illa slegnu grasi.