Inter Miami er að gera og græja til að félagið geti hafið leik í MLS deildinni í mars. Um er að ræða fyrsta tímabilið í sögu félagsins.
David Beckham er eigandi félagsins en hann vill fá stjörnur til félagsins til að fá fólk á völlinn.
Fjallað er um það í dag að Beckham sé að vinna í því að fá Luka Modric og Edinson Cavani til félagsins.
Cavani gæti komið á næstu vikum en hann hefur viljað fara frá PSG en fékk það ekki í gegn í janúar, Luka Modric líkt og Cavani er samningslaus í sumar.
Báðir gætu hugsað sé að ljúka ferlinum í Miami, gott veður og vel borgað á síðustu dögum ferilsins.