Bruno Fernandes, lék sinn fyrsta leik með Manchester United um helgina er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Wolves.
Fernandes komst ágætlega frá sínu í fyrsta leik en hann kom til United fyrir viku síðan frá Sporting Lisbon.
Í samtali við Record í Portúgal sagði Fernandes að hraðinn og takturinn í leiknum á Englandi hefði komið sér mikið á óvart. Blaðið segir að munurinn frá Portúgal sé meiri en Fernandes hafii átt von á.
Fernandes kvaðst hafa verið ánægður með sinn fyrsta leik en miklar væntingar eru gerðar til hans hjá United.
United hefur vantað skapandi miðjumann en Fernandes raðai inn mörkum og var duglegur að leggja upp í Portúgal.