Manchester United íhugaði að fá reynsluboltann Glenn Murray frá Brighton á lokadegi félagaskiptagluggans.
Frá þessu greinir the Daily Mail en United reyndi við nokkur nöfn áður en glugginn lokaði.
Það var Odion Ighalo sem gekk að lokum í raðir United en hann kom á láni frá Kína.
Murray er 36 ára gamall sóknarmaður en hann hefur ávallt staðið fyrir sínu í ensku úrvalsdeildinni.
United ákvað að lokum frekar að reyna við Ighalo og gekk það upp að lokum.