Gary Neville, goðsögn Manchester United, hefur gefið í skyn að hann ætli að taka sér frí er Liverpool vinnur ensku úrvalsdeildina.
Liverpool mun fagna sigri í úrvalsdeildinni á árinu og þarf aðeins að vinna sex sigra í viðbót.
Stuðningsmaður Liverpool sendi beiðni til Sky Sports í dag þar sem hann óskar eftir því að Martin Tyler og Neville verði ekki að lýsa þá helgi sem Liverpool vinnur.
Neville var ekki lengi að samþykkja þessa beiðni og hefur líklega sjálfur ekki mikinn áhuga.
Liverpool hefur aldrei unnið úrvalsdeildina en er með 22 stiga forskot í dag.
🤝 @SkySports https://t.co/KYkYd9HxnK
— Gary Neville (@GNev2) 3 February 2020