Rafa Benitez hefur staðfest það að hann muni snúa aftur í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa tekið við Dalian Yifang í Kína.
Benitez yfirgaf Newcastle í sumar til að taka við Yifang en hann ætlar að snúa aftur einn daginn.
,,Ég hef fengið tilboð úr úrvalsdeildinni en þú verður að gera það sem er rétt fyrir þig,“ sagði Benitez.
,,Þegar ég fór þá vildi ég halda áfram að vinna. Ég vildi ekki bíða. Þetta var stórt verkefni, gott tilboð og ég er ánægður með það.“
,,Já ég mun snúa aftur því fjölskyldan mín býr þarna. Úrvalsdeildin er spennandi. Þar er samkeppni, vellirnir eru fullir og stuðningsmennirnir ástríðufullir.“