Odion Ighalo, gekk nokkuð óvænt í raðir Manchester United í síðustu viku en hann kemur til félagsins frá Shanghai Shenhua. Í Kína þénar hann tæpar 50 milljónir á viku.
Ighalo er frá Nígeríu en hann yfirgaf heimalandi 17 ára gamall og á síðustu árum hefur hann þénað hressilega.
Ighalo liggur ekki einn á þeim aurum sem hann hefur aflað á ferli sínum. Árið 2017 opnaði hann heimili í Nígeríu fyrir börn sem geta ekki verið hjá foreldrum sínum eða hafa misst foreldra sína. Ighalo borgaði 170 milljónir til að opna heimilið og rekur það í dag.
,,Lífið var erfitt í Ajegunle, ég lofaði því að ef ég næði langt að þá myndi ég gefa til baka. Lífið var áskorun, þrátt fyrir að hafa haft foreldra,“ sagði Ighalo en heimilið tekur um 40 börn á hverjum tíma. Heimilið sér um börn til 18 ára aldurs.
,,Þau börn sem eru ein hafa haft það slæmt, við ætlum að hjálpa þeim í gegnum lífið.“