Miðjumaðurinn Kevin-Prince Boateng var að ganga í raðir tyrknenska félagsiðs Besiktas.
Boateng gerði hálfs árs langan lánssamning við Besiktas sem er eitt öflugasta lið Tyrklands.
Um er að ræða 32 ára gamlan miðjumann sem lék með Fiorentina fyrr á þessu tímabili.
Hann spilaði alls 14 deildarleiki fyrir Fiorentina og skoraði eitt mark.
Boateng hefur spilað í efstu deild í Þýskalandi, Englandi, Ítalíu Spáni og nú Tyrklandi.