Framherjinn Edinson Cavani er ekki á förum frá Paris Saint-Germain í janúarglugganum.
Þetta hefur Thomas Tuchel, stjóri PSG staðfest, en Cavani var mikið orðaður við önnur félög í vetur.
Framherjinn fær mjög takmarkað að spila í París og mun 100 prósent yfirgefa PSG næsta sumar.
Hann fær hins vegar ekki leyfi til að fara á lokadegi gluggans og spilar með PSG út leiktíðina.
Cavani fer því frítt næsta sumar en hann verður samningslaus eftir tímabilið.