Borussia Dortmund hefur staðfest komu miðjumannsins Emre Can frá Juventus.
Can kemur frá Juventus á láni en félagið þarf svo að kaupa hann endanlega á 30 milljónir evra.
Can ákvað fyrr í vetur að yfirgefa Juventus til að fá frekari mínútur fyrir EM sem byrjar næsta sumar.
Þessi fyrrum leikmaður Liverpool var ekki í myndinni hjá Maurizio Sarri og mátti færa sig um set.
Nennt ihn #einfachEmre! pic.twitter.com/QXhxQEs0dH
— Borussia Dortmund (@BVB) 31 January 2020