fbpx
Laugardagur 22.nóvember 2025
433Sport

Fernandes mættur á æfingasvæði United í læknisskoðun

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 30. janúar 2020 11:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno Fernandes kom til Manchester seint í gærkvöldi og mætti rétt í þessu á æfingasvæði félagsins. Hann fer beint í læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning síðar í dag.

United samdi um kaupverðið við Sporting Lisbon í gær og greiðir félagið 46,6 milljónir punda til að byrja. Líklega hækkar sú tala um 8,5 milljónir punda en einnig er klásúla um 12,7 milljónir punda ef United vinnur stóra titla, eins og Meistaradeildina.

Guardian segir frá því að Fernandes muni þéna 70 þúsund pund á viku, rúmar 11 milljónir íslenskra króna. Margir eru hissa á því enda launin ekki svo há í samanburði við aðra leikmenn félagsins, Jesse Lingard, Fred, Nemanja Matic, Phil Jones og Marcos Rojo þéna talsvert meira sem dæmi. Fernandes verður á meðal þeirra sem fær hvað minnst borgað í aðalliði United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Íþróttavikan í mynd: Landsleikirnir gerðir upp með Kjartani Henry og horft til Englands fyrir þétta helgi

Íþróttavikan í mynd: Landsleikirnir gerðir upp með Kjartani Henry og horft til Englands fyrir þétta helgi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Cole Palmer slasaði sig á heimili sínu og verður frá næstu vikurnar

Cole Palmer slasaði sig á heimili sínu og verður frá næstu vikurnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rooney gagnrýnir hversu mikið Heimir og lærisveinar hans fögnuðu

Rooney gagnrýnir hversu mikið Heimir og lærisveinar hans fögnuðu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir ungir sem Amorim vill fá inn í hóp sinn á næstu leiktíð

Tveir ungir sem Amorim vill fá inn í hóp sinn á næstu leiktíð