fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Leikmaður mættur í læknisskoðun hjá United: Ekki Sander Berge eins og kom fyrst fram

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 28. janúar 2020 11:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Manchester United urðu spenntir í nokkrar mínútur þegar enskir miðlar sögðu að Sander Berge, miðjumaður Genk væri að mæta í læknisskoðun hjá félaginu.

Berge er 21 árs gamall norskur miðjumaður en Sheffield United er að reyna að fá hann. Genk og Sheffield eru í viðræðum en Berge heillaði marga með Genk í Meistaradeildinni.

Það kom því mörgum á óvart þegar enskir miðlar sögðu að Berge væri mættur í læknisskoðun hjá United.

Mynd náðist af leikmanni að mæta í læknisskoðun á æfingasvæði United í dag en það er ekki Berge, talið er að þetta sé ungur markvörður sem fer í varalið félagsins.

United er að reyna að styrkja lið sitt og reynir félagið að fá Bruno Fernandes, áður en glugginn lokar á föstudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?