Kai Havertz, er biti sem öll stærstu lið Evrópu hafa áhuga á að krækja í næsta sumar. Svo virðist sem Liverpool hafi mikinn áhuga.
Erlendir miðlar segja frá því í dag að Liverpool gæti gert hann að dýrasta leikmanni í sögu enska fótboltans, næsta sumar.
Havertz leikur með Bayer Leverkusen og er tvítugur að aldri, erlendir miðlar segja að Liverpool sé tilbúið að greiða 107 milljónir punda fyrir hann.
Havertz er miðjumaður og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað sjö A-landsleiki fyrir Þýskaland.