Emre Can, leikmaður Juventus, er víst búinn að hafna því að ganga í raðir Manchester United.
Frá þessu greinir Tuttosport á Ítalíu en Can mun líklega yfirgefa Juventus í janúarglugganum.
Miðjumaðurinn lék áður með Liverpool en hlutirnir hafa ekki gengið upp á Ítalíu.
Ítaklski miðillinn segir að tenging Can við Liverpool komi í veg fyrir það að hann muni semja við United.
Hann ætlar því ekki að skella sér til Manchester en gæti reynt að finna sér annað lið á Englandi.