Það fóru fram fjölmargir leikir hér heima í dag og í kvöld en leikið var í bæði Fótbolta.net mótinu og Reykjavíkurmótinu.
Margir skemmtilegir leikir voru á dagskrá en Bjarkaleikurinn svokallaði fór einnig fram í Kórnum.
Þar áttuist við HK og Breiðablik í leik til minningar um Bjarka Má Sigvaldason sem lést á síðasta ári.
Þeim leik lauk með öruggum 6-1 sigri Breiðabliks og fengu tvö rauð spjöld að fara á loft.
Í sama riðli áttust við FH og ÍBV en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Valur marði Fram 2-1 í B-riðli Reykjavíkurmótsins og síðar í kvöld gerðu Víkingur R. og Leiknir R. 3-3 jafntefli.
Hér má sjá úrslit kvöldsins en eins og er vantar markaskorara úr flestum leikjunum.
Reykjavíkurmótið:
Valur 2-1 Fram
Víkingur R. 3-3 Leiknir R.
0-1 Sævar Atli Magnússon
1-1 Nikolaj Hansen
2-1 Logi Tómasson
2-2 Sævar Atli Magnússon
2-3 Sævar Atli Magnússon
3-3 Atli Hrafn Andrason
Fótbolta.net mótið:
HK 1-6 Breiðablik
FH 0-0 ÍBV
ÍA 2-2 Stjarnan
1-0 Brynjar Snær Pálsson
2-0 Steinar Þorsteinsson
2-1 Markaskorara vantar
2-2 Markaskorara vantar
Grótta 4-0 Grindavík
Njarðvík 2-1 Selfoss
Vestri 1-3 Keflavík