Ernesto Valverde, stjóri Barcelona er í hættu á að missa starfið sitt ef marka má fréttir á Spáni.
Valverde er á toppi deildarinnar á Spáni með Barcelona ásamt Real Madrid, hann er samt í hættu.
Valverde er ekki vinsæll í Katalóníu, fínn árangur en Valverde er samt í hættu á að missa starfið.
Sagt er að fundað verði um framtíð Valverde um helgina í Katalóníu, eftir tap gegn Atletico í Ofurbikarnum í gær.
Börsungar eru byrjaðir að daðra við Pep Guardiola um að snúa aftur heim, næsta sumar.