fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
433Sport

Segja að þetta sé draumur Ancelotti: Ekkert pláss fyrir Gylfa

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 10. janúar 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Carlo Ancelotti vill styrkja Everton í janúar, hann vill fá menn inn á miðsvæðið og er sagður vilja fá inn nýjan markvörð.

Ensk blöð segja að Carlo Ancelotti, nýr stjóri félagsins hafi spjallað við Gylfa og sagt honum að hann verði seldur frá félaginu í janúar. Stuðningsmenn Everton eru reiðir eftir tap gegn Liverpool í bikarnum í um helgina, þar sem Liverpool mætti með varalið sitt og vann Everton.

Daily Mail fjallar einnig um málið og segir Gylfa til sölu en greinir einnig frá því að aðrir leikmenn hafi fengið sömu skilaboð. Cenk Tosun, Morgan Schneiderlin, Theo Walcott og Michael Keane landsliðsmaður Englands eru einnig allir sagðir til sölu. Sagt er að Everton vilji safna 140 milljónum punda með því að selja þá.

Þá ku Ancelotti vilja henda Jordan Pickford úr markinu og fá inn Alex Meret. Hann vill einnig fá tvo miðverði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gerir allt til að komast frá United – Tilbúinn að lækka vel í launum

Gerir allt til að komast frá United – Tilbúinn að lækka vel í launum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Framtíð Pogba loks að skýrast

Framtíð Pogba loks að skýrast
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

De Bruyne segir Conte að fara til Manchester og sækja félaga sinn

De Bruyne segir Conte að fara til Manchester og sækja félaga sinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Bayern Munchen horfir til Arsenal

Bayern Munchen horfir til Arsenal
433Sport
Í gær

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall
433Sport
Í gær

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið