Jorge Jesus, stjóri Flamengo í Brasilíu, segir að Jordan Henderson sé besti miðjumaður heims í dag.
Henderson spilar með Liverpool á Englandi og er einn mikilvægasti leikmaður liðsins í dag.
Jesus og félagar í Flamengo mættu Liverpool í úrslitum HM félagsliða en töpuðu þar gegn enska liðinu.
,,Henderson er besti miðjumaður heims í hans stöðu,“ sagði Jesus í samtali við CMTV.
,,Jurgen Klopp hendir honum aldrei á bekkinn en hinir tveir miðjumennirnir eru stundum leystir af hólmi.“