Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, hefur tjáð sig um erfitt gengi liðsins þessa dagana undir Jose Mourinho.
Tottenham hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum en gengið hefur ekki batnað mikið síðan Jose Mourinho tók við af Mauricio Pochettino.
,,Tottenham er að ganga í gegnum ansi fyndinn og ansi langan tíma ef þú horfir á stöðuna,“ sagði Redknapp.
,,Síðustu 25 leikirnir undir Poch, formið var eins og það var af einhverjum ástæðum. Þeim gekk svo vel og svo versnaði það verulega.“
,,Jose er kominn inn og við þekkjum hans feril, hann er ótrúlegur. Hann er samt ekki með neinn töfrasprota og eins og staðan er þá lítur þetta ekki rétt út.“