Manchester United 1-3 Manchester City
0-1 Bernardo Silva(17′)
0-2 Riyad Mahrez(33′)
0-3 Andreas Pereira(sjálfsmark, 39′)
1-3 Marcus Rashford(70′)
Það fór fram stórleikur í kvöld er Manchester United fékk granna sína í Manchester City í heimsókn.
Um var að ræða leik í enska deildarbikarnum en liðin eiga eftir að spila á Etihad vellinum, heimavelli City.
City er þó í mjög góðri stöðu fyrir þann leik eftir að hafa unnið 3-1 útisigur í kvöld og nokkuð sannfærandi.
Öll mörkm City komu í fyrri hálfleik en þeir Bernardo Silva og Riyad Mahrez skoruðu fyrstu tvö.
Það var heppnisstimpill yfir þriðja markinu en Andreas Pereira fékk þá boltann í sig og varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
United tókst að laga stöðuna í 3-1 með marki frá Marcus Rashford en það dugði ekki til og lokastaðan, 1-3.