Manchester United vill kaupa James Maddison frá Leicester en telur það ekki gerlegt í janúar. Sky Sports segir frá.
Maddison hefur mikið verið orðaður við United, sóknarsinnaður miðjumaður sem United vantar sárlega.
Maddison hefur verið frábær með Leicester í vetur og vill félagið ekki missa mikilvægan mann nú í janúar.
,,Það er enginn pressa á að selja. James er hæfileikaríkur leikmaður, hann verður hér í janúar og lengur en það,“ sagði Brendan Rodgers um málið.
,,Við viljum halda honum næstu árin, umboðsmaður hans er að ræða við félagið en slíkt tekur alltaf tíma.“