Daniel James, leikmaður Manchester United, gekk í raðir liðsins til að vinna titla en hann kom frá Swansea í sumar.
United er í lægð þessa stundina en James er aðeins 22 ára gamall og gæti vel unnið titla með liðinu.
United mætir Manchester City í enska deildarbikarnum í kvöld en um er að ræða fyrri leik liðanna af tveimur.
,,Síðan ég kom hingað þá hefur það mikilvægasta að verið að vinna bikara, það er það sem ég vil gera,“ sagði James.
,,Þetta verður augljóslega stórt í tveimur viðureignum en ég held að við getum farið inn í þetta með höfuðið hátt.“
,,Við náðum í frábær úrslit hérna í desember. Það var erfiður leikur en við höfðum betur.“