Arsenal er komið áfram í næstu umferð enska bikarsins eftir leik við Leeds á Emirates í kvöld.
Það var í raun aðeins eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik í kvöld og það voru gestirnir frá Leeds sem voru mun betri.
Leeds fékk svo sannarlega færi til að komast yfir í leiknum en tókst ekki að nýta þau.
Allt annað Arsenal lið kom til leiks í seinni hálfleik og tók yfir leikinn á heimavelli.
Snemma í fyrri hálfleik skoraði Reiss Nelson mark fyrir heimamenn sem höfðu pressað að marki Leeds.
Leeds komst aldrei almennilega inn í leikinn eftir markið og lokastaðan á Emirates, 1-0.
Þetta var annar sigur Arsenal á sex dögum undir stjórn Mikel Arteta sem tók við nýlega.
Það eru fleiri sigrar en stuðningsmenn Arsenal fengu að upplifa allan nóvember og allan desember en þá sigraði liðið aðeins einn leik.
Arsenal have now won more games across all competitions after six days in January (2) than they managed in November and December combined (1).
Mikel Arteta F.C. pic.twitter.com/n34ssZc3gp
— Squawka Football (@Squawka) 6 January 2020