,,Það eru allir mjög svekktir,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir slæmt tap liðsins gegn Liverpool í enska bikarnum í gær. Það er svo sem ekki nein skömm að tapa fyrir Liverpool en liðið mætti með varaliðið sitt gegn Everton, það særir stuðningsmenn Everton.
Gylfi og félagar hafa fengið gagnrýni fyrir að hafa ekki farað og þakkað stuðningsmönnum sínum eftir leik, aðeins Djibril Sidibe gerði það. ,,Leikmenn taka svona á mismunandi hátt, það er bara hluti af þessu.“
,,Oftast fara leikmenn til stuðningsmanna eftir leik, ég er viss um að í framtíðinni munu leikmenn gera þetta.“
Gylfi var spurður að því hvort Ancelotti hafi verið reiður eftir leik. ,,Að sjálfsögðu, enginn er ánægður með svona tap og að vera úr leik í bikarnum.“
,,Allir sem tengjast félaginu eru svekktir, við getum bara kennt okkur sjálfum um. Þetta er svekkjandi.“
,,Við verðum að halda áfram að gera vel í deildinni líkt og síðustu vikur, klára tímabilið vel.