Manchester United vill kaupa James Maddison frá Leicester en telur það ekki gerlegt í janúar. Sky Sports segir frá.
Maddison hefur mikið verið orðaður við United, sóknarsinnaður miðjumaður sem United vantar sárlega.
Maddison hefur verið frábær með Leicester í vetur og vill félagið ekki missa mikilvægan mann nú í janúar.
Maddison er enskur landsliðsmaður en hann ólst upp sem stuðningsmaður Manchester United, það gæti hjálpað félaginu að sannfæra hann um að koma.
Ole Gunnar Solskjær vill versla inn leikmenn í janúar en hefur sagt að hann bíði frekar en að kaupa leikmenn sem hann trúir ekki á til framtíðar.