Alun Armstrong, stjóri Darlington er að verða brjálaður á ÍBV og vinnubrögðum þar ef marka frétt í staðarblaðinu í Darlington í dag.
Armstrong sagði fyrir helgi að Gary Martin væri að koma til félagsins á láni frá ÍBV. Gary átti að spila gegn Gloucester City á laugardag en hefur ekki fengið leikheimild.
,,Ég hef aldrei vitað um neitt sem hefur tekið svona langan tíma,“ sagði Armstrong um vinnubrögð ÍBV.
,,Ég var í símanum við Gary allan föstudag, græja tryggingu og eitthvað. Þá kom ÍBV með aðra hluti sem á að græja, þetta var klikkun.“
,,Stundum getur þú ekki gert neitt meira, það eru vandræði að fá leikmenn erlendis frá. Það tekur tíma,“ sagði Armstrong ern Gary Martin er frá Darlington.
Gary Martin var markakóngur í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar en verður með ÍBV í 1. deildinni næsta sumar. Vonast er til að Gary fái leikheimild með Darlington á næstu dögum.