Hansi Flick, stjóri Bayern Munchen, hefur útilokað það að Chelsea muni fá David Alaba í janúar.
Alaba hefur verið orðaður við Chelsea en þessi 27 ára gamli bakvörður er einn sá besti í heimi.
Chelsea þarf á bakvörðum að halda en félagið þarf að leita annað en á Allianz Arena.
,,Alaba er ekki til sölu í vetur. Hann stendur sig vel í miðverði þessa stundina,“ sagði Flick.
,,Hann getur verið leiðtogi liðsins og hann hefur sýnt það.“