Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gat ekki annað en hrósað hinum unga Curtis Jones eftir leik við Everton í gær.
Jones er 18 ára gamall en hann skoraði eina mark Liverpool í 1-0 sigri á Everton í enska bikarnum.
,,Hann er ótrúlegur leikmaður. Hann er héðan. Hann er fullur sjálfstrausts og getur ekki beðið eftir því að spila með aðalliðinu,“ sagði Klopp.
,,Hann verður leikmaður Liverpool ef ekkert skrítið gerist, það eru 100 prósent líkur á því.“
,,Markið hans kom mér ekki á óvart. Á æfingum þá gleymum við stundum að hann sé 18 ára gamall.“