Það er nú alveg búið að skemma styttuna af Zlatan Ibrahimovic fyrir utan heimavöll Malmö.
Frá þessu er greint í dag en sænskir miðlar birtu nýjustu myndirnar af styttu leikmannsins.
Á síðasta ári var reist stytta af Zlatan sem var áður í guðatölu hjá stuðningsmönnum Malmö.
Eftir að hafa keypt hlut í erkifjendum Malmö í Hammarby þá er hann hins vegar kominn í svörtu bókina.
Búið er að skera stytttuna niður en áður var búið að skera nefið af henni.
Þetta má sjá hér.