Liverpool 1-0 Everton
1-0 Curtis Jones(71′)
Liverpool er komið áfram í enska bikarnum eftir leik við granna sína í Everton í kvöld.
Spilað var á Anfield, heimavelli Liverpool, en heimamenn hvíldu helstu stjörnurnar í sigrinum.
Aðeins eitt mark var skorað en það gerði Curtis Jones fyrir Liverpool þegar 71 mínúta var á klukkunni.
Gylfi Þór Sigurðsson lék með Everton en hann var tekinn af velli í seinni hálfleik.