Chelsea er komið áfram í enska bikarnum eftir leik við Nottingham Forest í dag.
Spilað var á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea, en þeir Ross Barkley og Callum Hudson-Odoi gerðu mörk heimamanna í 2-0 sigri.
Tottenham lenti í vandræðum gegn Middlesbrough en spilað var á Riverside vellinum.
Þau lið þurfa að mætast aftur eftir 1-1 jafntefli en það var Lucas sem gerði eina mark gestanna.
Crystal Palace tapaði mjög óvænt heima gegn Derby og er úr leik. Palace leikur í efstu deild og tapaði 0-1 heima gegn Derby sem er í næst efstu deild.
Sheffield United vann þá smálið AFC Fylde 2-1 og er komið í næstu umferð keppninnar.