Það fer fram stórleikur á Englandi í kvöld er lið Liverpool fær Everton í heimsókn á Anfield.
Um er að ræða leik í enska bikarnum en Everton heimsækir Liverpool að þessu sinni.
Liðin mættust einnig á Anfield þann 4. desember síðastliðinn og vann Liverpool þá öruggan 5-2 sigur.
Hér má sjá byrjunarlið dagsins.
Liverpool: Adrian, Milner, Gomez, Phillips, Williams, Lallana, Chirivella, Jones, Elliott, Minamino, Origi.
Everton: Pickford, Coleman, Holgate, Mina, Digne, Sidibe, Gylfi Þór Sigurðsson, Schneiderlin, Walcott, Calvert-Lewin, Richarlison.