The Mirror greinir frá því í dag að Manchester United sé ekki búið að gefast upp á miðjumanninum James Maddison.
Maddison spilar með Leicester City en hann hefur sterklega verið orðaður við United síðustu vikur.
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, er búinn að fullyrða það að Maddison sé ekki á förum frá félaginu í janúar.
United telur sig þó geta boðið Leicester nógu gott tilboð og mun senda Jesse Lingard hina leiðina.
Mirror segir að United sé reiðubúið að greiða 45 milljónir punda fyrir Maddison og myndi Leicester einnig fá Lingard á móti.