Mino Raiola, umboðsmaðurinn geðþekki, bannar fólki að skilja eftir skilaboð í talhólfinu sínu.
The Times greinir frá þessu en Raiola er einn þekktasti umboðsmaður heims og sér um marga af bestu leikmönnum Evrópu.
Raiola er þekktur fyrir það að vera umboðsmaður leikmanna á borð við Zlatan ibrahimovic, Marco Verratti og Paul Pogba.
,,Þetta er Mino. Það er ekki í boði að skilja eftir skilaboð í talhólfinu. Sendið mér smáskilaboð,“ heyrist ef hringt er í Raiola.
Raiola vill því algjörlega stjórna hvað hann heyrir og við hvern hann talar og hlustar ekki á upptökurnar.