Tom Pope, framherji Port Vale á Englandi, skoraði mark fyrir liðið í leik gegn Manchester City í gær.
Pope er 34 ára gamall en hann skoraði eina mark Port Vale sem tapaði 4-1 á Etihad vellinum.
Framherjinn gagnrýndi eitt sinn varnarmanninn John Stones eftir að hafa horft á leik við Holland í júní.
Þar lofaði Pope því að hann myndi skora 40 mörk á tímabili ef hann fengi að mæta Stones í hverri viku.
Hann stóð svo sannarlega við það loforð og skoraði í fyrsta leiknum sem hann mætti Stones í.
Ansi skemmtilegt!
Just watched the highlights of the England game! I know I’m a league 2 player, I know he plays for England, I know he’s on £150k a week, I know he’s a million times better player than me but I’d love to play against John Stones every week! I’d get 40 a season! #soft #weakaspiss
— Tom Pope (@Tom_Pope9) 7 June 2019