Real Madrid er komið aftur á toppinn í spænsku úrvalsdeildinni eftir góðan útisigur í dag.
Real heimsótti Getafe í spænsku deildinni og var lokastaðan öruggur 0-3 sigur.
Þeir Raphael Varane og Luka Modric komust báðir á blað en fyrsta mark leiksins var sjálfsmark.
Síðar í dag mættust Atletico Madrid og Levante en þeim leik lauk með 2-1 sigri Atletico.
Atletico er fimm stigum frá toppliði Real en Barcelona er í öðru sætinu með leik til góða gegn Espanyol í kvöld.