Burnley er komið áfram í enska bikarnum eftir auðveldan 4-2 sigur á Peterbrough, Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði leikinn.
Kantmaðurinn knái var að byrja sinn fyrsta leik eftir meiðsli, en hann hafði í þrígang komið við sögu sem varamaður. Jóhann fór af velli í hálfleik, sökum meiðsla. Ekki er viðtað hvort meiðslin séu alvarleg. Jóhann var frá í tíu vikur á dögunum, eftir að hafa tognað aftan í læri.
Meiðsli hafa reglulega hrjáð kantmanninn knáa síðasta árið, sem kemur vonandi til baka sem fyrst.
Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Milwall gegn Newport en hann fiskaði vítaspyrnu í 2-0 sigri. Newcastle gerði 1-1 jafntefli við Rochdale og þurfa liðin að mætast aftur. Aaron Wilbraham sem er fertugur jafnaði gegn Newcastle.
Úrslit dagsins:
Birmingham City 1 – 1 Blackburn Rovers
Bristol City 1 – 1 Shrewsbury Town
Burnley 4 – 2 Peterborough United
Millwall 3 – 0 Newport County
Rochdale 1 – 1 Newcastle United
Rotherham United 2 – 2 Hull City