Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er vanmetnasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Það segir Gary Lineker, fyrrum framherji Englands, en hann sá leik Liverpool og Sheffield United í vikunni.
Það hefur verið talað um að Henderson fái ekki nógu mikið hrós fyrir sitt starf á miðju Liverpool.
Lineker hefur verið mjög hrifinn af frammistöðu Henderson og hrósar honum í hástert.
,,Ég held að JHenderson gæti verið vanmetnasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar,“ sagði Lineker á Twitter síðu sinni eins og má sjá hér.
Think @JHenderson might just be the most underrated player in Premier League history. Guess I might have just changed that.
— Gary Lineker (@GaryLineker) 2 January 2020